Umferðarslys

Umferðarslys

Umferðarslys

Líkamstjón sem rekja má til notkunar á bifreið, eða vélhjóli, kann að leiða til bótaréttar úr ábyrgðartryggingu ökutækis. Þetta á við hvort sem hinn slasaði var í rétti eða órétti, ökumaður eða farþegi bifreiðar, hjólandi eða gangandi vegfarandi.

Mikilvægt er að leita til læknis eins fljótt og unnt er eftir að slys á sér stað. Ástæða þess er annars vegar að flýta fyrir bata og hins vegar að tryggja sönnun vegna mögulegrar bótakröfu.

Einnig er mikilvægt að leita til lögmanns snemma í ferlinu. Ástæða þess er að lögmaður sem þekkir bótaferlið getur komið í veg fyrir réttindamissi sökum vanþekkingar og tryggt að ágreiningsmál um bótaskyldu og bótafjárhæð leysist á farsælan hátt fyrir tjónþola.

Fyrsta viðtal vegna slysa- og skaðabótamála er frítt. Ef þú ert í vafa um rétt þinn kostar því ekkert að kanna hvort ástæða sé til frekari skoðunar.

Í upphafi fer fram greining á hvort bótaréttur kann að vera til staðar, en bætur vegna umferðarslysa eru reiknaðar á grundvelli skaðabótalaga.

Ef telja má að bótaréttur vegna líkamstjóns sé til staðar getur þú að loknu fyrsta viðtali falið Porto að innheimta þær bætur sem þú átt rétt á. Ef engar bætur fást greiddar er engin þóknun greidd.

Hafðu samband og kannaðu rétt þinn.

Umferðarslys