Lögmannsstofa í Hafnarfirði
Porto lögmannsstofa
Persónuleg og fagleg þjónusta
Velkomin á Porto lögmannsstofu sem starfar í hjarta Hafnarfjarðar
Porto lögmannsstofa veitir einstaklingum og fyrirtækjum persónulega og faglega lögfræðiþjónustu á fjölbreyttum sviðum lögfræðinnar.
Stofan einbeitir sér sérstaklega að málum á sviði fasteignaréttar, erfðaréttar, slysa- og skaðabótaréttar, vinnuréttar, faðernismála, gjaldþrotamála, stjórnsýsluréttar, sjóréttar og sjávarútvegs, réttinda sjómanna, og málflutningi.
Þar að auki tekur Porto lögmannsstofa að sér fjölbreytt önnur lögfræðileg verkefni, meðal annars ráðgjöf, gerð lögfræðilegra skjala, hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum, tryggingafélögum og öðrum aðilum, auk málflutnings fyrir dómstólum.
Markmið Porto lögmannsstofu er að veita vandaða, persónulega og lausnamiðaða þjónustu þar sem hagsmunir viðskiptavinarins eru í fyrirrúmi.
Hafðu samband
Þarftu aðstoð lögmanns? Hafðu samband við Porto lögmannsstofu og við förum yfir málið og metum hvernig við getum aðstoðað.
Heimilisfang: Bæjarhraun 6, 220 Hafnarfjörður
Sími: 792 2090
Netfang: porto@portolog.is
Opið: mán – fös 9-16
Þjónustan, í hverju sérhæfum við okkur í:
- Fasteignagallamálum og fasteignakaupamálum
- Erfðamálum
- Skiptum á dánarbúum og gjaldþrotaskiptum
- Sjóréttur og sjávarútvegi
- Slysamálum
- Skaðabótamálum
- Vinnurétti
- Samskiptum við stjórnvöld / stjórnsýslumálum
- Faðernismálum og véfengingarmálum
- Innheimtum
- Hjúskaparmálum og sambúðarmálum
- Heilbrigðisrétti
- Auk þess sinnum við málum á hinum ýmsu sviðum lögfræðinnar
Við hjá Porto lögmannsstofu í Hafnarfirði leggjum áherslu á skilvirka, trausta og lausnarmiðaða þjónustu.
Björgvin Helgi Fjeldsted Ásbjörnsson
Lögmaður og eigandi
Lögmaður í Hafnarfirði Lögfræðingur í Hafnarfirði
Menntun og réttindi
Héraðsdómslögmaður
MA í lögfræði frá Háskóla Íslands
BA í lögfræði frá Háskóla Íslands
Ótakmörkuð skipstjórnarréttindi á fiskiskip
Starfsferill
Björgvin starfaði í fjölda ára sem skipstjórnarmaður áður en hann varð lögmaður og hefur því víðtæka þekkingu og reynslu af siglingum og starfsumhvefi sjávarútvegs, þ. á. m. aðbúnaði og vinnuumhverfi sjómanna, aflamarkskerfinu, og stjórn og siglingu skipa. Á grundvelli þeirrar reynslu hefur hann setið sem sérfróður meðdómsmaður í dómsmálum, og tekur að sér störf sem matsmaður.
Björgvin hefur einnig unnið að innleiðingu alþjóðlegra samþykkta á sviði siglinga, og ritari yfirfasteignamatsnefndar.
Auk þess að starfa á Porto lögmannsstofu sinnir Björgvin kennslu í sjórétti við Skipstjórnar- og vélstjórnarskóla Tækniskólans.
Björgvin tekur einnig að sér matstörf sem matsmaður í líkamstjónamálum.
Sérsvið Björgvins
Fasteignagallamál og fasteignakaupamál • Erfðamál • Skipti á dánarbúum og gjaldþrotaskipti • Sjóréttur og sjávarútvegi • Slysamál • Skaðabótamál •Vinnuréttur • Samskipti við stjórnvöld / stjórnsýslumál • Faðernismál og véfengingarmál • Innheimta • Hjúskaparmál og sambúðarmál • Heilbrigðisréttur • Auk þess sinnir hann við málum á hinum ýmsu sviðum lögfræðinnar