Álitsgerð

Ráðgjöf, hagsmunagæsla og skjalagerð

Erfðaréttur

Erfðaskrár og erfðareglur almennt hafa það að markmiði að greiða fyrir eðlilegri eignayfirfærslu milli kynslóða. Lögbundnum erfðareglum er ætlað að endurspegla aðilaskipti að eignum með þeim hætti sem meiri hluti borgaranna telur eðlilegt á hverjum tíma. Með erfðaskrá er svo einstaklingum gert fært að ráðstafa eignum sínum í samræmi við vilja sinn með ákveðnum takmörkunum.

Ef engin erfðaskrá er til staðar erfast eignir í samræmi við erfðalög. Reglur erfðalaga leiða til þess að arfur rennur til tiltekinna ættingja hins látna eftir ákveðinni forgangsröð. Ef arfleifandi vill haga erfðum eftir sig með einhverjum öðrum hætti þarf að mæla fyrir um það í erfðaskrá.

Þjónusta Porto lögmannsstofu í málefnum í erfðarétti:

Gerð erfðaskrár

Ráðgjöf við einkaskipti dánarbúa

Skiping dánarbúa

Fyrirframgreiddur arfur

Afturköllun erfðaskrár

Portolog.is
Persónuverndarupplýsingar

Þessi síða notar vefkökur (einnig oft kallaðar vafrakökur eða rafræn fótspor). Vefkökur eru smáar textaskrár sem vefir vista á tölvunni eða snjalltækinu þínu þegar þú heimsæki vefsíðu. Þetta gerir tölvunni þinni eða snjalltæki kleift að muna fyrri heimsóknir og er því síðan m.a. mun fljótari að hlaðast sem bætir notendaupplifun.  Vefkökur gera það kleift að vefsíður fái nafnlausar upplýsingar um hvernig notendur nota vefinn og muna stillingar notendans yfir ákveðinn tíma. Engum upplýsingum verður deilt með þriðja aðila.